Í dag fóru lögreglumenn embættisins með umferðargetraun lögreglunnar í alla 5. bekki á Vesturlandi. Nemendurnir stóðu sig með prýði og munu vinningshafarnir fá heimsókn frá okkur á aðfangadag.🎅🏻
... Sjá meiraSjá minna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er víða við umferðareftirlit í umdæminu þessa dagana, en um helgina kannaði hún með ástand um tvö þúsund ökumanna í sérstöku eftirliti með ölvunar-, fíkniefna- og lyfjaakstri. Fimm þeirra reyndust ölvaðir og einn undir áhrifum fíkniefna og voru þeir fluttir á lögreglustöð. Tíu ökumönnum til viðbótar var gert að hætta akstri. Þeir höfðu allir neytt áfengis en voru undir refsimörkum.
Langflestir ökumannanna tóku afskiptunum vel, enda eru þau gerð í þágu almennings í þeim tilgangi að gera umferðina öruggari fyrir alla.
... Sjá meiraSjá minna
Talsverður erill er gjarnan í aðdraganda jóla hjá okkur öllum. Jólamarkaðir eru víða, jólahlaðborð og annað sem kallar auk þess á aukið eftirlit og verkefni hjá lögreglu. Helgin bar þess merki þar sem í mörg horn var að líta. Umferðarslys varð á Háreksstaðaleið þar sem bifreið fór út af vegna hálku og valt. Þrír ungir piltar voru í bílnum sem allir þurftu aðhlynningar við en virðast hafa sloppið með skrekkinn. Ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og það mál nú til afgreiðslu.
Þá var lögregla með sérstakt eftirlit með lagningum ökutækja í kringum Jólamarkaðinn á Egilsstöðum en þar hefur á stundum verið pottur brotinn. Hvatning var þess vegna send út á föstudag til ökumanna um að nýta bílastæði sem eru víða í kring um markaðinn. Er skemmst frá því að segja að lögregla þurfti ekki að hafa afskipti af neinum vegna þessa.
Förum varlega í skammdeginu og gætum þannig hvert að öðru, ekki síst í þeim ys og þys er fylgir mánuðinum.
... Sjá meiraSjá minna